Síða í vinnslu

Þórarinn Einar Þórarinsson stofnaði og hóf rekstur Batik ehf vorið 2007 eftir að hafa starfað sem deildarstjóri merkingadeildar hjá 66°N í um 30 ár. Hugmyndin að stofnun fyrirtækisins voru fyrirspurnir ferðamannaverslana og hönnuða um silkiprentun á stærri fyrirmyndum á boli en tíðkaðist hér á landi og ekki virtist auðvelt að fá gert. Starfsemin þróaðist síðan fljótlega í alhliða merkingar og sölu á fatnaði til fyrirtækja, verslana og félagssamtaka. Í dag býður Batik, auk silkiprentunar upp á bróderingar (ísaumsmerkingar) og færimyndamerkingar (transfer printing) á fatnað.

Á árinu 2009 var samið við þýska fyrirtækið Daiber Gmh að gerast dreifingaraðili á Íslandi fyrir vörulínur þess á James & Nicholson fatnaði og Myrtle Beach húfum. Þar með styrktist staða fyrirtækisins til muna þar sem Daiber er sennilega með fjölbreyttasta vöruúrval sem þekkist frá einu og sama fyrirtækinu á þessum markaði. Auk þess að bjóða gæða bómullar boli allskyns peysur á hagstæðum verðum bjóða þeir fjölbreyttan lífsstíls fatnað fyrir athafnasamt fólk, hvort sem er til vinnu eða leiks. Má þar nefna meðal annars íþróttafatnað úr hátæknilegum efnum fyrir hlaupara, hjólreiðafólk, hópíþróttir, golf o.fl. Þá er úrvalið í húfunum frá Myrtle Beach ótrúlegt. Þrátt fyrir þetta eru þeir með yfir 95 % afhendingaöryggi í afgreiðslum frá lager í Þýskalandi. Einnig heldur Batik þjónustulager af vinsælustu tegundum og litum á Bíldshöfða 16.

 

Á árinu 2010 hóf Batik að bjóða eigin fatnað undir vörumerkjunum Atgeir og Vilkma Professionals úr gæða efni, fyrir veitingahús og fyrirtæki. Má þar nefna, svuntur og sloppa í mörgum gerðum, skyrtur o.fl. og stefnir fyrirtækið að stækka þessa vörulínu á næstunni vegna góðra viðtöku viðskiptavina.

Frá og með október 2011 hefur Batik gerst dreyfingaraðili fyrir fyrirtækið JHK, sem sérhæfir sig í framleiðslu á gæða bolum.

Halfar James & Nicholson Myrtle Beach JHK Vilkma Professionals